Trúarjátning


Samþykktir og trú Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi


1. gr.

Nafn og varnarþing. Starfssvæði.

Nafn trúfélagsins er Hvítasunnukirkjan á Íslandi (hér einnig nefnd "Hvítasunnukirkjan). Starfssvæði presta Hvítasunnukirkjunnar er Ísland. Varnarþing trúfélagsins er í Reykjavík.

2. gr.

Skilgreining

Hvítasunnukirkjan á Íslandi er samtök sjálfstæðra Hvítasunnukirkna sem aðhyllast sameiginlega trúarjátningu og kenningar (sjá 3. gr.) og reglur um starfshætti og njóta viðurkenningar aðalfundar Hvítasunnukirkjunnar. Hvítasunnukirkjan á Íslandi skal hafa sameiginlegt einkennismerki.

3. gr.

Trúarjátning og kenningar

Trúarjátning trúfélagsins er: Jesús er Drottinn (1. Korintubréf 12:3). Kenningar Hvítasunnukirkjunnar eru:

3.1.

Við trúum að Biblían, Heilög ritning, sé innblásin, óskeikul, óvéfengjanleg og myndugt orð Guðs. (2. Tímóteusarbréf 3:16).

3.2.

Við trúum á einn Guð, sem eilíflega er til í persónum Heilagrar þrenningar (1. Jóhannesarbréf 5:7-8).

3.3.

Við trúum á meyjarfæðingu Drottins Jesú Krists, að Guðdómur hans hafi verið ótakmarkaður, að mannlíf hans hafi verið syndlaust og fullkomið. (Lúkas 1:35).

3.4.      

Við trúum að friðþægingardauði Jesú á Golgata sé fullnægjandi að eilífu fyrir alla iðrandi menn. (Jóhannes 3:16).

3.5.      

Við trúum líkamlegri upprisu Jesú frá dauðum, uppstigningu hans til hægri handar föðurins á himni (Jóhannes 20:20).

3.6.      

Við trúum persónulegri endurkomu Jesú, þegar hann hrífur brúði sína til fundar við sig í loftinu, og að eftir það muni hann stíga niður á Olíufjallið og stofnsetja þúsund ára friðarríki hér á jörð. (Postulasagan 1:11).

3.7.      

Við trúum að í vændum sé Nýr himinn og Ný jörð, þar sem hið fyrra er horfið og hafið ekki lengur til ( Opinberunarbókin 21:1).

3.8.      

Við trúum að réttlæting af synd sé dómgjörð Guðs og eingöngu byggð á friðþægingarverki Jesú Krists. Við trúum að endurfæðing fyrir kraft Heilags anda sé algjör nauðsyn til persónulegrar endurlausnar (Rómverjabréfið 3:24; Jóhannes 3:3).

3.9.      

Við trúum á gildi helgaðs og guðrækilegs lífernis.

3.10.      

Við trúum á raunveruleika skírnar í Heilögum anda og eldi fyrir daginn í dag. Að náðargjafir Heilags anda séu gefnar til þjónustu í söfnuðinum, þar á meðal yfirskilvitleg lækning Drottins fyrir líkama mannsins (1. Pétursbréf 2:24).

3.11.      

Við trúum á Drottinvald Jesú yfir söfnuðinum. Virt sé framkvæmd skírnar með niðurdýfingu í vatn í nafni Heilagrar þrenningar, til Jesú Krists. Ekki skulu aðrir en endurfæddir skírast. Kvöldmáltíð Drottins er fyrir þá sem eru endurfæddir. (Kólossubréfið 1:18; 1. Korintubréf 12:13; Matteus 28:19)

3.12.      

Við trúum á eilífa blessun hinna endurleystu á himni og eilífa refsingu hinna óendurfæddu í eldsdíki (Matteus 25:46).

4. gr.

Framkvæmd safnaðarstarfs og fjárhagur

Sérhver sjálfstæð Hvítasunnukirkja er sjálfráð um framkvæmd safnaðarstarfs síns og ábyrg fyrir fjárhag sínum. Hver sjálfstæð Hvítasunnukirkja skal hafa sínar eigin samþykktir. Trúarjátning og kenningar hvers staðbundins safnaðar skal þó ávallt vera samhljóða 3. gr. samþykkra þessara.

5. gr.

Söfnuðir og safnaðadeildir

Stjórn hvers staðbundins safnaðar veitir fólki inngöngu í söfnuðinn.

Hverjum og einum er heimilt að segja sig úr söfnuðinum er hann óskar þess. Úrsögn skal senda skriflega til prests eða safnaðarstjórnar viðkomandi safnaðar, svo og tilkynna hana Hagstofu Íslands.

Safnaðarstjórn hvers safnaðar hefur vald til að vísa einstaklingum úr söfnuðinum.

Hverri sjálfsstæðri Hvítasunnukirkju skulu tilheyra hið fæsta tólf meðlimir, sextán ára og eldri.

Hvítasunnukirkjan á Íslandi samanstendur af eftirtöldum söfnuðum:

Hvítasunnukirkjan Akureyri

Hvítasunnukirkjan Fíladelfía, Reykjavík

Hvítasunnukirkjan Lifandi Vatn á Höfn

Hvítasunnukirkjan Keflavík

Hvítasunnukirkjan í Kirkjulækjarkoti

Hvítasunnukirkjan Salem, Ísafirði

Hvítasunnukirkjan Selfossi

Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum

Deildir Hvítasunnukirkjunnar Akureyri:

Hvítasunnukirkjan Akureyri

Hvítasunnukirkjan Vopnafirði

Hvítasunnukirkan Síon, Siglufirði

Deildir Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, Reykjavík:  

Hvítasunnukirkjan Fíladelfía, Reykjavík.

Hvítasunnukirkjan Stykkishólmi

Hvítasunnukirkjan Akranesi   

Leggi kirkja niður starf sitt af einhverjum ástæðum, skulu eignir hennar renna til Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi. Ef ákvörðun um að leggja niður söfnuð á að vera gild verður að samþykkja hana í viðkomandi kirkju á tveimur aðalfundum í röð með minnst þriggja mánaða millibili. Á hvorum fundinum fyrir sig verða minnst 2/3 hlutar viðstaddra að gefa samþykki sitt.

6. gr.

Aðalfundir

Æðsta vald í sameiginlegum málefnum Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi er í höndum aðalfundar eða eftir atvikum almenns fundar. Hlutverk aðalfundar er að vera stefnumótandi í framkvæmd sameiginlegra mála Hvítasunnu-kirkjunnar á Íslandi.

6.1. Boðun og lögmæti

Framkvæmdastjóri félagsins boðar til aðalfundar. Til aðalfundar

skal boðað með tveggja vika fyrirvara hið minnsta og mest fjögurra vikna. Fundarboð skal senda skriflega til allra presta aðilarsafnaða. Prestar aðildarsafnaða sjá um að boða sína safnaðarmeðlimi sem rétt eiga til setu á aðalfundi.  

Aðalfund Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi skal halda eigi síðar en 31. mars ár hvert.

Fundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, og helmingur boðaðra fulltrúa er mættur.

6.2. Fundarseta og kjörgengi

Rétt til setu á aðalfundi hafa stjórnarmenn hverrar Hvítasunnukirkju eða varamenn þeirra. Geti öldungur (stjórnarmaður) safnaðar ekki mætt til aðalfundar, getur viðkomandi söfnuður valið og sent fulltrúa (varamann) í hans stað. Fjöldi fulltrúa hvers safnaðar á aðalfundi fer eftir stærð hvers safnaðar. Söfnuðir sem telja 12-49 safnaðarmeðlimi mega senda 3 fulltrúa, söfnuðir sem telja  50-149 meðlimi mega senda 5 fulltrúa og söfnuðir með 150 meðlimi  eða fleiri má senda 7 fulltrúa.

Þeir menn, sem valdir hafa verið í nefndir, stjórnir og önnur störf á vegum Hvítasunnukirkjunnar hafa sama rétt til fundarsetu og aðalfulltrúar, þegar málefni þeim viðkomandi eru til umræðu og afgreiðslu.

Makar stjórnarmanna, svo og fulltrúar á trúboðafundi, hafa rétt til áheyrnar á aðalfundi. Þó getur aðalfundur ákveðið að halda lokaðan fund og skal tilkynnt um það fyrirfram.

Kjörgengir til stjónar Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi eru prestar safnaða eða safnaðadeilda.

6.2. Verkefni aðalfundar

Fulltrúi fundarboðanda setur aðalfund og lætur kjósa fundarstjóra og fundarritara. Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirtalin mál:

1. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.

2. Framlagning ársreikninga til umræðu og samþykktar.

3. Stjórnarkjör

         a. Kosning fimm einstaklinga í stjórn.

c. Kosning varamanna (2)

d. Kosnir séu 2 félagskjörnir endurskoðendur félagsins         

4. Kosning í nefndir og önnur störf á vegum Hvítasunnukirkjunnar.  3

5. Mál sem tiltekin eru í fundarboði[1].

6. Lagabreytingar (breytingar samþykkta).

7. Önnur mál.

6.3. Atkvæðasgreiðslur og vægi atkvæða.

Atkvæðagreiðslur fara fram með handauppréttingu, eða skriflega sé þess óskað. Til almennra ákvarðana þarf samþykki einfalds meirihluta fundarmanna. Tillaga/ákvörðun telst felld falli hún á jöfnum atkvæðum.

Ef um tvær eða fleiri tilnefningar um persónukosningu er að ræða telst sá kjörinn sem hlýtur einfaldan meirihluta atkvæða eða (ef fleiri en tveir) sá sem hlýtur flest atkvæði.

Samþykktum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi og þá með atkvæðum 2/3 hlutum atkvæðabærra fundarmanna.

Aðalfundur getur ákveðið framhaldsaðalfund.

Aðalfundir og stjórnarfundir hvers safnaðar séu haldnir eftir þörfum. Sama á við um fundi félaga og stofnana innan Hvítasunnukirkjunnar.

7. gr.

Almennir fundir

Telji stjórn Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi eða a.m.k. fjórðungur þeirra sem rétt eiga til setu á aðalfundi nauðsynlegt að boða til almenns fundar Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi milli aðalfunda skal boða til slíks fundar með minnst sjö daga og mest 14 daga fyrirvara. Skal tiltaka málefni fundarins sérstaklega í skriflegu fundarboði til þeirra sem rétt eiga á setu á aðalfundi.

8. gr.

Stjórn. Skyldur og verkefni.

Stjórn Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Hver stjórnarmaður skal kosinn til tveggja ára í senn. Kosið skal um tvo stjórnarmenn á hverjum aðalfundi. Stjórn Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi ber ábyrgð á starfi kirkjunnar milli aðalfunda. Stjórnin velur sér formann til tveggja ára í senn. Starfstími formanns skal vera frá 10. ágúst til 10. ágúst. Kosningar um formann skulu vera leynilegar. Hlutverk stjórnar er að fjalla um mál sem varða Hvítasunnukirkjuna í heild og upp kunna að koma milli aðalfunda. Formaður stjórnar ásamt stjórn annast starf kirkjunnar á milli aðalfunda. Starf formanns er m.a.: Eftirlit með að samþykktum aðalfunda sé framfylgt; samskipti Hvítasunnukirkjunnar inn á við og út á við; að mæla með umsækjendum um opinber réttindi við Innanríkisráðuneytið fyrir hönd Hvítasunnukirkjunnar; að undirbúa og boða til aðalfundar og trúboðafunda; annast skýrslugjöf til Innanríkisráðuneytisins. Formaður ber ábyrgð á því að bókhald kirkjunnar sé fært í samræmi við lög og venjur og að meðferð eigna sé með tryggilegum hætti. Önnur mál sem stjórnin felur formanni sérstaklega. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda. Boða skal til fundar með hæfilegum fyrirvara og er þriggja daga frestur að jafnaði talinn nægilegur, boða skal bæði stjórnarmenn og varamenn. Meirihluti stjórnar getur einnig ákveðið að boða til stjórnarfundar. Stjórnin skal funda að minnsta kosti annan hvern mánuð. Stjórnin er ákvörðunarhæf þegar meirihluti stjórnarmanna er á fundi sem hefur verið boðaður á fullnægjandi hátt. Á stjórnarfundum er málum ráðið til lykta með einföldum meirihluta atkvæða. Forfallist stjórnarmaður skal varamaður boðaður.

9. gr.

Nefndir og stjórnir

Nefndir og stjórnir Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi eru:

Siðferðisráð 

er skipað þremur fulltrúum safnaðanna og tveimur til vara og situr hver fulltrúi í tvö ár í senn. Ef upp kemur ágreiningur í stjórn safnaðar eða milli stjórnar og safnaðar og/eða ef upp kemur siðferðisbrestur innan safnaðar sem ekki er hægt að leysa hjálparlaust má safnaðarstjórn í heild eða hluta leita til Siðferðisráðs sem hefði forgöngu um að leita lausna á vandanum.

Sjái Siðferðisráð ástæðu til íhlutunar án beiðni frá stjórn eða safnaðarmeðlimum hefur nefndin heimild til íhlutunar. Siðferðisráð starfi þá í samráði við viðeigandi safnaðarstjórn.

Siðferðisráð hefur rétt til að kalla sér til aðstoðar hvern þann sem þurfa þykir. Komi upp mál sem varðar meðlim í Siðferðisráði skal viðkomandi víkja sæti í tilteknu máli. Ef upp kemur mál á milli tveggja meðlima í Siðferðisráði skulu þeir báðir víkja sæti.

Trúboðs og kristniboðsnefnd 

annast sameiginleg kristniboðsmál Hvítasunnukirkjunnar. Í nefndinni sitja fimm fulltrúar safnaðanna og skulu þeir tilnefndir af söfnuðinum til eins árs. Nefndin skiptir með sér störfum formanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnenda. Nefndin hefur til ráðstöfunar sameiginlegan kristniboðssjóð Hvítasunnukirkjunnar. Nefndin gefur aðalfundi skýrslu um störf sín.

Skálastjórn 

annast málefni Skálans í Kirkjulækjarkoti. Stjórnin er skipuð fimm mönnum og skal kosin til tveggja ára. Kosning fari fram á árlegum aðalfundi Hvítasunnukirkjunnar og fari fram eftir venjulegum fundarreglum. Nefndin gefur aðalfundi skýrslu um störf sín.



[1] Sá sem hefur rétt á setu á aðalfundi getur óskað eftir því að tiltekið málefni verði sett á dagskrá aðalfundar. Skal sú ósk berast framkvæmdastjóra/fundarboðanda í síðasta lagi 31. janúar ár hvert. Stjórn getur synjað um ósk um að tiltekið málefni sé tekið fyrir á aðalfundi.


  
Flettingar í dag: 33
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 255790
Samtals gestir: 111009
Tölur uppfærðar: 24.5.2013 13:35:35
Hvítasunnukirkjan á Íslandi, Hátúni 2, 105 Reykjavík, Iceland
sími: 535 4700, email: filadelfia@filadelfia.is